Umsókn: Trusted Partner
Trusted partners Meet in Reykjavík - Iceland Convention Bureau eru fyrirtæki sem hafa beina hagsmuni af viðskiptaferðaþjónustu og kjósa að vinna náið með verkefninu á sviði markaðssóknar. Til að teljast Trusted partner þarf fyrirtæki að sýna fram á gild íslensk starfsleyfi og tryggingar, skilgreina hagsmuni fyrirtækisins af viðskiptaferðaþjónustu (MICE) og gera grein fyrir hvaða þjónustu fyrirtækið veitir markhópnum. Einnig þarf fyrirtækið að sýna fram á sjálfbærnivottun eða opinbera sjálfbærnisstefnu.
Þjónusta við Trusted partners:
- Meet In Reykjavík – Trusted Partner lógó til notkunar í markaðs- og kynningarefni sínu.
- Þáttökuréttur á sýningum og söluviðburðum. Kjölfestuaðilar og viðburðarfyrirtæki njóta forgangs við skráningu á sýningar.
- Undirbúningur/þjálfun fyrir þátttöku í viðburðum.
- Þátttaka í verkefnastjórn : Þrír fulltrúar Trusted Partners kjörnir í verkefnisstjórn árlega.
- Tilboðsbeiðnir (RFP) skv. reglum um úthlutun.
- Aukinn sýnileiki á vef, markaðs- og kynningarefni – eins og við á
Umsóknir vegna Trusted Partner eru lagðar fyrir stjórnarfund verkefnisins til yfirferðar og mun niðurstaða liggja fyrir innan 7 virkra daga frá stjórnarfundi. Athugið að stjórnarfundir verkefnisins eru haldnir á tveggja mánaða fresti.
Til að sækja um að starfa með markaðsverkefninu sem Trusted Partner þarf að fylla út umbeðnar upplýsingar hér fyrir neðan.